facebook-pixel
Skip to content

um íþaka GO

Katrínartún 4 - 8 hæð


Rými fyrir samvinnu: fullkomin lausn fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki

Íþaka Go er lausn fyrir smærri fyrirtæki og einyrkja sem þurfa rými til að vaxa. Rýmin okkar uppfylla allar helstu kröfur til þess að skapa þægilegt vinnuumhverfi. 

Hvort sem þig vantar bara eitt skrifborð eða stærra rými þá getum við boðið lausn sem hentar þér.

Laust núna

Laus pláss í sameiginlegu rými

Hæð: 4

Til leigu vandað 437 m² skrifstofuhúsnæði á 4. hæð við Katrínartún. Laust frá 1. mars 2025

Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist upp í opið rými sem er að hluta til eldhús/ kaffistofa með stórri innréttingu, tvær lokaðar stórar skrifstofur með glerveggjum, eitt glerveggjað fundarherbergi, eitt stórt fundaherbergi og eitt samtalsherbergi. Á gólfi er parket. Vandað kerfisloft með innfelldri lýsingu ásamt loftræstibúnaði. Snyrtingar eru í sameign á hæðinni.
Skrifstofuhúsnæði í háum gæðaflokki sem þjónar öllum nútímaþörfum. Í kjallara hússins er stór bílageymsla, búningsklefar og hjólageymsla. Sjón er sögu ríkari. VSK leggst við leigufjárhæðina. 

Myndir

Katrínartún 4
Katrínartún 4
Hæð: Jarðhæð

Til leigu glæsilegt 162 m² skrifstofu-/ verslunarhúsnæði á jarðhæð að meðtalinni hlutdeild í sameign við Katrínartún.
Sjálft rýmið er 140 m². Laust fljótlega. Húsnæðið er staðsett í nærumhverfi við mörg flott fyrirtæki í fjármálageiranum.
 
Gæti hentað vel fyrir glæsilega lögfræðistofu, bókhaldsþjónustu, arkitekta, verslun, hárgreiðslustofu og eða flott kaffihús.

Nánari lýsing: Rýmið skiptist upp í opið sýningar-/ vinnurými, kaffiaðstöðu og Wc. Mikil lofthæð. Mattslípaðar granítflísar á gólfi. Vönduð DELTA - lýsing í loftum. Vélræn loftræsting og rafmagnsopnun á gluggum. Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja og aðgengi er að sameiginlegum búningsklefum, sturtum og hjólageymslu í sameign. VSK leggst við leigufjárhæðina.

Myndir

Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4
Katrínartún 4

Til leigu er bjart og vandað 545 fm skrifstofurými á 8. hæð í Katrínartúni 4. Rýmið er í einni af þekktustu skrifstofubyggingum Höfðatorgs og nýtur fallegs útsýnis yfir borgina.

Rýmið er vel skipulagt og hentar fyrirtækjum sem vilja sameina opið og nútímalegt vinnuumhverfi með góðri fundar- og starfsmannaaðstöðu. Þar er blanda af opnum vinnusvæðum, fundarrýmum, kaffiaðstöðu og setusvæðum. Rýmið hefur einnig aðgang að stórum svölum, sem setja sterkan svip á eignina og auka notagildi hennar.

Stórir gluggar, góð birta og snyrtilegar innréttingar skapa aðlaðandi vinnuumhverfi. Staðsetningin við Höfðatorg er miðlæg og eftirsótt, í göngufæri við þjónustu, veitingastaði, hótel og samgöngur.

Myndir

Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Katrínartún 4 - 8 hæð
Hæð: -1

Geymslurými með aðkomu frá bílastæðahúsi Höfðatorgi, í kjallara sem geta leigst utan að komandi og þarf ekki að vera bundið annarri leigu í Katrínartúni 4. 24 tíma aðgengi.

Myndir

Katrínartún 4 1
Katrínartún 4 2
Katrínartún 4 3

skoða á korti

fotur